Færsluflokkur: Bloggar

hver ber ábyrgðina?

Hvað er  með þetta BaugsmálBandit.. ég er bara fegin að þurfa ekki að hlusta ( nema kannski að takmörkuðu leiti) meira á fréttaflutning af því, en eg velti fyrir mér hvernig hægt er að bruðla svona með almannafé-- hver er eiginlega ábyrgur fyrir þessu?  er það sá sem valdið hefur eða??  getur einhver sagt mer það?

ekki meira í bili

adios


íhísbjarnarstúss

mér finnst það oggu merkilegt hvað fall ísbjarnarins á Þverárfjalli vakti hörð viðbrögð hjá fjölda fólks. Allir áttu það sammerkt að vita nákvæmlega hvernig átti að bregðast við bangsa þarna upp á regin fjöllum. Er það ekki kostulegt hvað það eru margir sem hafa það á hreinu hvað best er að gera í stöðunni ef gengið er fram á bangsa.

Ég segi bara alveg eins og er að ef eg gengi fram á einn slíkan -  þá hefði eg bara ekki hugmynd um hvað best væri að gera í stöðunni- ég hugsa að ég tæki til fótanna!! nema að ég væri svo heppin að vera með svæfingarlyf fyrir ísbirni á mér.  Mín skoðun er sú að þetta hafi verið vel skiljanleg viðbrögð að fella greyið - á hinn bóginn finnst mer mikilvægt að við lærum af reynslunni og verðum í stakk búin að þyrma næsta bjössa þegar hann byrtist- hvar á landinu sem það verður. Líklega hefur nú bjössinn ekki gert sér grein fyrir að þetta villuráf hans þarna á heiðinni væri stórpólitískt mál á Íslandi.... 

 ég sagði einhvers staðar að eg ætlaði að taka matarÆÐI mitt í gegn.. ég verð að segja að það hafa orðið smá framfarir þar- ég er komin í nammibindindiGasp það er ótrúlegt hversu mikil áhrif mataræði hefur á andlega og líkamlega líðan ... að minnsta kosti mínaW00t hvernig er það með ykkur - er alveg sama hverju þið úðið í ykkur???

ekki meira að sinni

adios

 


mómælendur og fleira gott fólk

þá er þessi dagur á enda. það hljóp heldur betur á snærið hjá fréttamönnum í dag. Eg var orðin hálf leið á þessu þegar líða tók á kvöldið. Mér fannst líka engu líkara en lögreglan væri í löggu og bófa leik- með sprey brúsa og kylfur á lofti. Ætli það sé ekki betra að fara samningaleiðina þegar svona stendur á? Reyndar voru þessi mótmæli orðin að  hálfgerðum skrílslátum og krakkastubbar sem vissu lítð út á hvað þetta gekk farin að kasta eggjum í lögregluna sér til dægrastyttingar. Það verður spennandi að sjá hvað gerist nú á næstu dögum. Mér sýnist bílstjórarnir komnir í mikinn ham og langi í meira stuð. :)

svo verður líka spennandi að sjá hvernig deila hjúkrunarfræðinga á skurðstofum Landspítala fer. Í kvöldfréttum í kvöld sagðist heilbrigðisráðherra ekki trúa þvi að hjúkrunarfræðingar gengu út. Var  hann ekki að spila út samviskuspilinu? Kannski er það það eina sem virkar á hjúkrunarfræðinga:(

en við sjáum hvað setur

ekki meira í bili


Höfundur

Hildur
Hildur
júbbídíjú:):)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband