24.4.2008 | 00:52
mómælendur og fleira gott fólk
þá er þessi dagur á enda. það hljóp heldur betur á snærið hjá fréttamönnum í dag. Eg var orðin hálf leið á þessu þegar líða tók á kvöldið. Mér fannst líka engu líkara en lögreglan væri í löggu og bófa leik- með sprey brúsa og kylfur á lofti. Ætli það sé ekki betra að fara samningaleiðina þegar svona stendur á? Reyndar voru þessi mótmæli orðin að hálfgerðum skrílslátum og krakkastubbar sem vissu lítð út á hvað þetta gekk farin að kasta eggjum í lögregluna sér til dægrastyttingar. Það verður spennandi að sjá hvað gerist nú á næstu dögum. Mér sýnist bílstjórarnir komnir í mikinn ham og langi í meira stuð. :)
svo verður líka spennandi að sjá hvernig deila hjúkrunarfræðinga á skurðstofum Landspítala fer. Í kvöldfréttum í kvöld sagðist heilbrigðisráðherra ekki trúa þvi að hjúkrunarfræðingar gengu út. Var hann ekki að spila út samviskuspilinu? Kannski er það það eina sem virkar á hjúkrunarfræðinga:(
en við sjáum hvað setur
ekki meira í bili
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ætli að þú hafir ekki hitt naglann beint á hausinn með að þetta hefðu mest verið krakkakjánar að hita í uppákomu bílstjóra. Finnst þó að lögreglan hafi fengið ómaklege krítik víða, þeim er lagt að halda uppi lögum og reglu, það er sennilega ekki auðvelt að greina á milli "góðu og vondu kallana" í hita augnabliksins. Voru annars nokkrar konur þarna?
Eru hjúkrunarfræðingar aftur að ybba sig, hvað er nú á stjái hjá þeim?
GLEÐILEGT SUMAR!
Sigga Sig Mac (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 14:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.