Meiri músík... meistari Clapton

eitthvað er ég nú löt í blogginu- enda mikið að gera yfir hásumarið. það eru ýmsar skyldur sem kalla, til að mynda að láta sér líða vel í sumarfríinu.. gera sem minnst og hugsa bara um eigið skinn:)

en eg fór á tónleikana með Clapton um daginn. Ég fílaði karlinn í botn og naut þess virkilega að vera þarna. það var ótrúlegt að sjá og heyra kraftinn í tónlistinni og merkilegt hvað hann hefur enn mikið úthald. Mer fannst þó vanta upp á að hann tæki gömlu slagarana sína eins og Lay down Sally, Laila, I shot the sheriff og fleiri og fleiri.   Ég var létt pirruð á sleðaganginum sem kom á daginn ef maður vildi kaupa sér drykk. Þarna var ferlega heitt og allir löðursveittir, en eg mátti standa í biðröð í eina og hálfa klukkustund til að komast að til að kaupa drykki. Þarna voru örfáir litlir krakkar ( ekki yfir 18 ára mundi eg giska á) að afgreiða bjór, hvítvín og vatn. þetta tók óratíma þvi að ekki mátti afgreiða bjórinn í dósunum heldur var honum helt í plastglas og sama gilti um hvítvínið. þetta tók óratíma og fólkið sem stóð þarna í biðröð frekar óhresst með ástandið. Er það ekki doldið klikkað að fyrir miða sem kostar 9000 kr. skuli manni vera boðið upp á slíkt?? ég á ekki von á að það hafi mikill peningur farið í að borga þeim sem unnu á barnum, því þau voru sennilega á lægsta taxta og svo voru þau líka svo fá. oggu molbúalegt.  Get lítið dæmt um Ellen því allan þann tíma sem hún var að syngja var eg í biðröðinni. En Clapton var schnilld:)

en nú er spennandi að vita hver verða næstu skref í borgarmálunum:)

adios


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það nær sko ekki einni einustu  átt að þurfa að bíða í óratíma eftir að fá smá hvítvín á brúsann!! Þvílíkur ræflaháttur. En söng hann ekki eitt af mínum uppáhaldslögum, "Tears in Heaven"?  Fæ alltaf gæsabólur þegar ég heyri það lag. ... Eiríkur er bara klár og ég samgleðst þér með að hafa komist á tónleikana hans.

Dúdda dollar (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 04:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hildur
Hildur
júbbídíjú:):)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband